Jörðin Fell er á Norðausturlandi, nánar tiltekið á svonefndri Langanesströnd, sem liggur milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Frá Felli eru 13 km til Þórshafnar, 30 km til Bakkafjarðar og 55 km til Vopnafjarðar, stærsta þéttbýliskjarnans á svæðinu. Fell stendur stutt frá sjó í mikilli náttúrufegurð og rólegu umhverfi undir fellinu sem bærinn dregur nafn sitt af, Smyrlafelli. Við bænum blasir einnig Gunnólfsvíkurfjall, 719 metra hátt og tignarlegt.
Reist hafa verið tvö hús eitt 15 fm hús sem hefur fengið nafnið Smyrill og annað sem er 25 fm að stærð og heitir Fálki. Þemað hjá gestgjöfunum er umhverfið, þ.e.a.s. að nýta það sem náttúran gefur af sér og að gefa notuðum hlutum nýtt líf. Húsin eru t.d. að miklu leyti unnin úr rekavið sem unnin var á bænum.
Verið velkomin í gistingu að Felli.
Leave a comment